já já já já!!
haldiði að kellingin hafi ekki lennt í sínu fyrsta
vinnuslysi og bara búin að vera í viku og 3 daga í vinnu...
hehe ég í þessum töluðum orðum að koma frá slysó (Frikki
takk æðislega fyrir að sækja mig og fara með mig) en já ég
datt sem sagt í vinnunni og þegar á slysó var komið
þurfti ég að bíða í hálftíma sem var lengi að líða því að ég var að
drepast í hægri löppinni
en ég fékk að fara í
hjólastól
ég er að pæla í að kaupa mér eitt svolleiðis
stykki til að láta mömmu keyra mig um í!!
en já ég greindist
með tognun sem betur fer ekki brot en þetta lítur ekki vel út því
að ég er frá vinnu í smá tíma!! þannig nú er tíminn til að liggja
uppí rúmmi og gera ekki neitt!!
Það fyndnasta við þetta er að einn strákur í
vinnunni sagði rétt áður, "ótrúlegt að þú ert ekki búin að slasast
en það mun koma að því, það slasa sig allir hérna þetta er svo
mikið áhættusvæði" þá sagði ég "nei nei hvaða vitleysa ég er svo
varkár" hehehehe
Þið megið endilega hugsa hlytt til mín og kýkja í
heimsókn!
Nú fer Kata skata að koma heim, jibbí hlakka ekkert smá
til! Eva er farin inná klaustur með nunnunum! ekkert nema fyllerí
skilst mer, en það er bara gaman!
en ég ætla að reyna að sofna þó það muni ekki takast
útaf verkjum
Lifið heil og forðist bíla, lyftara, gáma og
slíkt!!!!!




