Það er nú ekki mikil gleði hjá mér akkurat núna. Ég vaknaði í
morgun og gat ekki talað og bara komin með hita og allan pakkan. Ég
er sko ekki að nenna standa í því og læt enginn veikindi stoppa mig
frá því að fara vinna og læra. Annars er ég ekkert byrjuð á að læra
... ætlaði hins vegar að vera ótrúlega dugleg eins og flestir að
læra en nei nei það er alltof mikið að öðru að gerast.
Eins og það voru alveg 2 leiklistarpartý um helgina sem voru
bæði alveg mjög skemmtileg og vil ég þakka Örnu Propslady og
Halldóri Viðgerðamanni einstaklega vel fyrir mig. Því þetta var
bara mikið stuð og stemmning á báðum stöðum. Ég vil að það verði
haldin fleiri leiklistarpartý því þetta er svo skemmtilegur hópur
og ég sakna þess svo mikið að vera ekki á leiklistaræfingum ...
Já ég er búin að vera vinna alla helgina í bíóinu mínu og það er
búið að vera frekar crazy að gera útaf Ice age 2 myndinni. En já ég
er búin að fara á kostum þar eins og ég rann á bleitu á gólfinu en
náði samt að standa í lappirnar, síðan var ég að taka kókglas og
kíldi mig í andlitið í leiðinni veit ekki hvernig það gerðist. Ég
var líka að afgreiða einn gaur og var að tala í leiðinni við eina
stelpu sem er að vinna með mér og rétti henni afganginn af
peningnum sem strákurinn borgaði með og ég fattaði þetta ekki strax
og gaurinn fór bara að hlæja og þá fattaði ég að hann ætti að fá
afganginn. Æji þetta er búin að vera spes vinnuhelgi ....
Síðast en ekki síst þá ákvað ég það og Bryndís líka að fara á
Hróaskeldu í sumar
. draumurinn að rætast !!! loksins loksins
!!! En ég ætla þá að vera bara í viku í Búlgaríu staðinn. En mig
hefur langað á hróaskeldu síðan ég var í 10.bekk og ég ætlaði að
fara í fyrra en nei krakkarnir beiluðu illilega á mér svo ég ætla
panta bara allan pakkan núna í vikunni og bara fara og það verður
geðbilað gaman. Geðveikt góður hópur að fara, fyrir utan stelpurnar
sem vilja/geta ekki komið með .... það er líka rosagóðar
hljómsveitir að fara eins og Artic Monkeys, Bullet for my
valentine, Clap your hand say yeah!, Deftones, BOB DYLAN, Floetry,
Franz Ferdinand, Guns and roses, Morrissay, Opeth, Placebo, Sigur
rós, Tool, Kanye West og fleiri góðir og fleiri eftir að koma.
En held að þetta sé gott í bili ... Eva Hróaskeldufari
